03.03.26 - 13:58
Elvar Geir Magnússon
Haaland æfir í dag


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Norski sóknarmaðurinn Erling Haaland mun æfa í dag og líklegt að hann muni geta komið við sögu annað kvöld þegar Manchester City mætir Nottingham Forest.
Haaland var ekki með í sigrinum nauma gegn Leeds en hann hafði fengið högg á æfingu í aðdragandanum og ákveðið var að taka enga áhættu með hann.
Haaland var ekki með í sigrinum nauma gegn Leeds en hann hafði fengið högg á æfingu í aðdragandanum og ákveðið var að taka enga áhættu með hann.

TENGT EFNI
Bolli Már spáir í 29. umferð ensku úrvalsdeildarinnar
„Honum líður miklu betur. Við tökum ákvörðun með hann eftir æfingu í dag," segir Pep Guardiola, stjóri City, en Haaland er með 22 mörk í 27 deildarleikjum á tímabilinu.
City mun einnig skoða Nico O’Reilly sem fór af velli meiddur á ökkla í leiknum á Elland Road.
Manchester City er fimm stigum á eftir toppliði Arsenal og á leik til góða.
City mun einnig skoða Nico O’Reilly sem fór af velli meiddur á ökkla í leiknum á Elland Road.
Manchester City er fimm stigum á eftir toppliði Arsenal og á leik til góða.
Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 10 | +10 | 27 |
| 2 | Brighton | 10 | +19 | 22 |
| 3 | Man City | 10 | +8 | 21 |
| 4 | Liverpool | 10 | +4 | 18 |
| 5 | Chelsea | 10 | +3 | 16 |
| 6 | Everton | 10 | +2 | 16 |
| 7 | Bournemouth | 10 | +2 | 15 |
| 8 | Brentford | 10 | +5 | 14 |
| 9 | Leeds | 10 | +2 | 14 |
| 10 | Aston Villa | 10 | -3 | 13 |
| 11 | Tottenham | 10 | -1 | 12 |
| 12 | Newcastle | 10 | -3 | 12 |
| 13 | Hull City | 10 | 0 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 10 | -5 | 11 |
| 15 | Fulham | 10 | -2 | 10 |
| 16 | Nott. Forest | 10 | -4 | 9 |
| 17 | Coventry | 10 | -9 | 9 |
| 18 | Man Utd | 10 | -5 | 8 |
| 19 | Sunderland | 10 | -9 | 8 |
| 20 | Crystal Palace | 10 | -14 | 7 |
