Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   þri 03. mars 2026 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bolli Már spáir í 29. umferð ensku úrvalsdeildarinnar
Bolli á góðri stundu.
Bolli á góðri stundu.
Mynd: Úr einkasafni
Bolli hefur mikla trú á Ekitike.
Bolli hefur mikla trú á Ekitike.
Mynd: EPA
Newcastle tekur á móti Manchester United.
Newcastle tekur á móti Manchester United.
Mynd: EPA
Fær Hjammi kærkominn sigur?
Fær Hjammi kærkominn sigur?
Mynd: Tango Travel
Það er veisla í miðri viku þar sem við fáum heila umferð í ensku úrvalsdeildinni.

Ívar Örn Árnason, leikmaður Breiðabliks, var með fimm rétta þegar hann spáði í leiki síðustu umferð. Bolli Már Bjarnason, útvarpsmaður og uppistandari, spáir í leikina að þessu sinni.

Everton 1 - 2 Burnley (19:30 í kvöld)
Eftir ótrúlegan sigur gegn Newcastle eru þeir bláklæddu saddir og sælir, mæta til leiks gegn Burnley og girða niður um sig.

Bournemouth 1 - 1 Brentford (19:30 í kvöld)
2 lið sem er frekar erfitt að eiga við þegar kemur að því að spá, Brentford eru ekki mikið fyrir jafntefli (4) á meðan Bournemouth elska þau (12). Held að heimaliðið stýri þessu í enn eitt jafnteflið.

Leeds 2 - 0 Sunderland (19:30 í kvöld)
Sunderland farnir að gefa eftir. Kvöldleikur á Elland Road undir ljósunum, sé bara Leeds sigur í þessu.

Wolves 1 - 3 Liverpool (20:15 í kvöld)
Úlfarnir með flottan sigur á föstudaginn en verða jarðtengdir af mínum mönnum. Ekitike skorar 2 í þessum leik, fínt að setja 10 evrur á það.

Brighton 2 - 2 Arsenal (19:30 á morgun)
Arsenal misstígur sig gegn pressulausum Brighton mönnum sem sigla einhvern lygnasta sjó sem sögur fara af. Hellings óskhyggja í þessu en ég held þetta samt sem áður, Brighton mæta vel gíraðir til leiks.

Man City 3 - 1 Nottingham Forest (19:30 á morgun)
City lokar þessu gegn baráttugröðum Forest mönnum. Þetta verður samt ágætlega spennandi.

Fulham 1 - 1 West Ham (19:30 á morgun)
Þessi endar í jafntefli, West ham jafnar á 80. mínútu og liggja á þeim en Fulham siglir stiginu heim.

Aston Villa 1 - 2 Chelsea (19:30 á morgun)
Villa eru að gefa eftir og mér finnst Chelsea eiga inni, held að þeir bláklæddu vinni þennan og Villa stimplar sig hægt en örugglega úr baráttunni.

Newcastle 3 - 1 Man Utd (20:15 á morgun)
United heppnir í síðasta leik en sú heppni dugir ekki undir ljósunum á St. James Park. Newcastle fer ekki að tapa 2 í röð á heimavelli og lokar þessu fagmannlega.

Tottenham 2 - 0 Crystal Palace (20:00 á fimmtudag)
Elsku Tottenham... Guð minn almáttugur hvað þeir eru slakir! En ég trúi því að þetta sé leikur sem þeir vinna, ef þeir vinna ekki eru þeir að biðja um að falla. Ég elska Hjamma og ég elska Andra bróðir minn, þeir eru harðir Tottenham menn - ég legg ekki í það ef illa fer. Koma svo Spurs!!

Fyrri spámenn:
Páll Sævar (7 réttir)
Elliði Snær Viðarsson (6 réttir)
Hinrik Harðarson (6 réttir)
Arnar Laufdal (6 réttir)
Óskar Borgþórs (6 réttir)
Sævar Atli (6 réttir)
Ísak Bergmann (6 réttir)
Ívar Örn (5 réttir)
Brynjar Atli (5 réttir)
Sandra Erlingsdóttir (5 réttir)
Björn Bragi (5 réttir)
Hjammi (5 réttir)
Martin Hermanns (5 réttir)
Kristján Óli (4 réttir)
Baddi Borgars (4 réttir)
Ásgeir Frank (4 réttir)
Viktor Bjarki (4 réttir)
Viktor Gísli (4. réttir)
Nablinn (4 réttir)
Helgi Guðjónsson (4 réttir)
Thelma Karen (4 réttir)
Tumi Þorvars (4 réttir)
Gummi Ben (4 réttir)
Elín Helena (3 réttir)
Siggi Höskulds (3 réttir)
Sérfræðingurinn (2 réttir)
Valgeir Valgeirs (2 réttir)
Óðinn Svan (1 réttur)

Hér fyrir neðan má sjá stigatöfluna í deildinni.
Enski boltinn - Heimskur Neto, trylltur Sesko og Spurs í djúpum skít
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp