Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 03. maí 2015 17:38
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu markið: Ólafur Karl Finsen með fyrsta mark sumarsins
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Karl Finsen tryggði Stjörnunni Íslandsmeistaratitilinn með síðasta marki síðasta tímabils og hann heldur uppteknum hætti og hefur skorað fyrsta markið á þessu tímabili.

Nú stendur yfir leikur ÍA og Stjörnunnar á Skipaskaga og er staðan þegar styttuist í hálfleik 0-1.

Stjarnan fékk aukaspyrnu 25 metrum fyrir utan vítateig ÍA. Ólafur Karl Finsen tók spyrnuna og hún rataði efst í markhornið, óverjandi fyrir Árna Snæ Ólafsson í markinu. Stórglæsilegt mark hjá Ólafi!

Markið má sjá af heimasíðu Vísis hér að neðan.

Fylgst er með öllum leikjum Pepsi-deildarinnar í beinum textalýsingum Fótbolta.net.

Beinar textalýsingar:
17:00 ÍA - Stjarnan
17:00 Fjölnir - ÍBV


Athugasemdir
banner
banner
banner