13.09.26 - 16:33
Brynjar Ingi Erluson
Ásdís tryggði sigurinn með fyrsta deildarmarki sínu - Ída Marín skoraði aftur

Ásdís Karen var hetja AIK

Mynd: AIK

Ída Marín fer vel af stað með Hammarby

Mynd: Hammarby

Ásdís Karen var hetja AIK

Mynd: AIK

Ásdís Karen Halldórsdóttir var hetja AIK í 1-0 sigri liðsins á Piteå í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Þá gerði Ída Marín Hermannsdóttir fyrsta deildamark sitt fyrir Hammarby sem vann 3-0 sigur á Växjö.
Ásdís samdi við AIK á dögunum eftir stutt stopp á Íslandi þar sem hún lék með FH.
Hún spilaði sinn annan leik með AIK í dag og skoraði um leið sitt fyrsta mark fyrir félagið. Ásdís gerði sigurmarkið á 81. mínútu og kom liði sínu upp í 5. sæti með 28 stig.
Ída Marín Hermannsdóttir skoraði þá sitt fyrsta deildarmark fyrir Hammarby.
Hún gerði þrennu í frumraun sinni með liðinu í bikarnum á dögunum og bætti við þriðja marki Hammarby í 3-0 sigri á Växjö í dag, aðeins nokkrum mínútum eftir að hafa komið inn af bekknum.
Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn í vörn Hammarby sem er í öðru sæti með 47 stig, tveimur stigum á eftir Häcken í svakalega spennandi titilbaráttu.