13.09.26 - 16:08
Brynjar Ingi Erluson
Besta deildin: KR náði fram hefndum gegn ÍA - Gríðarlega mikilvægur sigur FH

Galdur Guðmundsson skoraði tvennu í sigri KR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dagur Orri skoraði í mögulega sínum síðasta leik fyrir Val

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Benedik Warén skoraði bæði mörk Stjörnunnar

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

FH-ingar unnu mikilvægan sigur

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

KR-ingar hafa ekki skráð sig úr titilbaráttunni í Bestu deild karla eftir að hafa náð fram hefndum gegn ÍA með frábærum 5-1 sigri á Meistaravöllum í dag. Á sama tíma tókst nokkrum liðum að fjarlægjast fallbaráttuna.
Á dögunum tapaði KR óvænt 3-1 fyrir ÍA á ELKEM-vellinum, úrslit sem höfðu veruleg áhrif á titilbaráttu liðsins.
KR-ingar voru harðákveðnir í að bæta fyrir það og gerðu það með stæl.
Galdur Guðmundsson kom KR yfir á 7. mínútu en Orri Hrafn Kjartansson átti risastóran þátt í markinu. Hann keyrði upp völlinn, lék á nokkra, fann Aron Sigurðarson og fékk boltann aftur áður en hann kom honum fyrir. Boltinn fór í gegnum allan pakkann og á Galdur sem þrumaði honum í þaknetið.
Hinn ungi og efnilegi Sigurður Breki Kárason bætti við öðru marki sjö mínútum síðar. Hann fékk boltann í miðjuhringnum, keyrði upp allan völlinn og fékk nægan tíma til að munda skotfótinn áður en hann setti boltann örugglega í netið.
Aftur liðu sjö mínútur á milli marka og Galdur var aftur á ferðinni. Árni Marinó Einarsson varði skot Orra Hrafns en Galdur hirti frákastið og kom KR í 3-0.
Markús Páll Ellertsson náði að klóra í bakkann þegar um tuttugu mínútur voru eftir. Johannes Vall sendi frábæran bolta inn á Markús sem tók viðstöðulaust skot í netið.
KR-ingar voru þó fljótir að koma sér aftur í gírinn. Aron Sigurðarson fann Luke Rae sem skallaði boltann inn á markteiginn þar sem Eiður Gauti Sæbjörnsson tók hann niður og skoraði framhjá Árna.
Rae átti síðan lokaorðið. Ástbjörn Þórðarson slapp í gegn hægra megin og kom boltanum fyrir á Rae sem rúllaði honum auðveldlega í netið og 5-1 sigur KR staðreynd.
KR er komið upp í annað sætið með 47 stig, sex stigum á eftir toppliði Víkinga, og titilbaráttan galopin á ný. ÍA er í 5. sæti með 30 stig.
Endurkoma hjá Val í mögulegum kveðjuleik Dags
Valsmenn unnu 4-1 sigur á Þór á Hlíðarenda.
Akureyringar komust yfir með marki Sigfúsar Fannars Gunnarssonar. Þorri Ingólfsson átti frábæra fyrirgjöf sem Frederik Schram hikaði við að fara út í og endaði það með því að Sigfús fékk boltann og skoraði.
Valsmenn fóru þá að hóta. Dagur Orri Garðarsson, sem er sagður á leið til Slóvakíu eftir leikinn, setti boltann í stöng en stillti miðið nokkrum mínútum síðar og jafnaði metin eftir frábæran undirbúning Jónatans Inga Jónssonar.
Staðan var 1-1 í hálfleik en Valur gekk frá Þórsurum á nokkrum mínútum snemma í þeim síðari. Lúkas Logi Heimisson skoraði á 52. mínútu áður en Patrick Pedersen bætti við þriðja markinu með skalla eftir aukaspyrnu Tryggva Hrafns Haraldssonar.
Á lokakaflanum kláraði Myles Veldman svo dæmið með hörkuskoti alveg út við stöng. Frábær endurkoma hjá Val sem er með 30 stig en Þór aðeins einu stigi fyrir ofan fallsæti.
Sterkur sigur hjá Stjörnunni
Stjarnan færðist nær því að tryggja sæti sitt í Bestu deildinni með 2-0 sigri á ÍBV.
Benedikt Warén vann leikinn fyrir Stjörnuna með tveimur mörkum á fjórum mínútum.
Í fyrra markinu vann Emil Atli boltann af Mattias Edeland, sem féll aftur fyrir sig, og kom boltanum síðan á Benedikt sem skoraði örugglega.
Annað markið kom eftir slæm mistök Ara Petersen í marki ÍBV. Sending hans fór út í innkast, Stjarnan vann boltann fljótt aftur og Benedikt fékk hann fyrir utan teig áður en hann skoraði með frábæru skoti.
Eyjamenn fengu einnig sín færi en þegar leið á síðari hálfleikinn voru Stjörnumenn líklegri til að bæta við en ÍBV að koma til baka.
2-0 sigur Stjörnunnar varð niðurstaðan og liðið er á toppi neðri hlutans með 31 stig, svo gott sem búið að tryggja áframhaldandi sæti í deild þeirra bestu.
Þrjú mikilvæg stig hjá FH-ingum
FH náði í gríðarlega mikilvægan 3-0 sigur á KA í Kaplakrika.
Það er mikil barátta í botnslagnum og mikið undir. KA fékk dauðafæri til að komast yfir á 23. mínútu en fór illa með það og FH refsaði fjórum mínútum síðar þegar Adolf Daði Birgisson skoraði.
Frábær sending kom inn fyrir vörn KA og á Adolf sem vippaði boltanum yfir Ívar Arnbro Þórhallsson í markinu.
Síðari hálfleikurinn þróaðist svipað og sá fyrri. KA fékk tvö frábær færi í upphafi en færanýtingin varð liðinu að falli á meðan FH nýtti sín tækifæri.
Tómas Orri Róbertsson tvöfaldaði forystuna eftir góða pressu FH. Varnarmenn KA töpuðu boltanum, Kjartan Kári Halldórsson lagði hann á Tómas sem lét vaða vel fyrir utan teig og boltinn söng í netinu.
Leikurinn var svo gott sem búinn nokkrum mínútum síðar þegar André Römer sparkaði boltanum í eigið net. Klaufalegt hjá Akureyringum.
Leikurinn var jafnari en lokatölurnar gefa til kynna en færanýtingin skildi liðin að. Sigurinn er gríðarlega stór fyrir FH sem er í 3. sæti neðri hlutans með 24 stig, fjórum stigum á undan KA sem er í næstneðsta sæti.
Úrslit og markaskorarar:
Efri hlutinn:
KR 5 - 1 ÍA
1-0 Galdur Guðmundsson ('7 )
2-0 Sigurður Breki Kárason ('14 )
3-0 Galdur Guðmundsson ('21 )
3-1 Markús Páll Ellertsson ('69 )
4-1 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('71 )
5-1 Luke Morgan Conrad Rae ('83 )
Lestu um leikinn
Neðri hlutinn:
Stjarnan 2 - 0 ÍBV
1-0 Benedikt V. Warén ('28 )
2-0 Benedikt V. Warén ('32 )
Lestu um leikinn
FH 3 - 0 KA
1-0 Adolf Daði Birgisson ('27 )
2-0 Tómas Orri Róbertsson ('53 )
3-0 André Rømer ('57 , sjálfsmark)
Lestu um leikinn
Valur 4 - 1 Þór
0-1 Sigfús Fannar Gunnarsson ('17 )
1-1 Dagur Orri Garðarsson ('27 )
2-1 Lúkas Logi Heimisson ('52 )
3-1 Patrick Pedersen ('56 )
4-1 Myles A Veldman ('82 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 22 | +46 | 53 |
| 2 | Fram | 22 | +14 | 45 |
| 3 | KR | 22 | +25 | 44 |
| 4 | Breiðablik | 22 | +2 | 30 |
| 5 | ÍA | 22 | -2 | 30 |
| 6 | Keflavík | 22 | -5 | 28 |