Fotbolti.net
13.09.26 - 16:20
Brynjar Ingi Erluson

Spánn: Fór aðeins um Börsunga undir lokin - Raphinha og Yamal áfram í stuði

Lamine Yamal skoraði tvö mörk og Raphinha lagði upp tvö.

Lamine Yamal skoraði tvö mörk og Raphinha lagði upp tvö.

Canon

Mynd: EPA

Spánarmeistarar Barcelona unnu fimmta sigur sinn í La Liga í dag, en tæpt var það.
Börsungar voru öflugir í fyrri hálfleik og hinn 18 ára gamli Xavi Espart skoraði sitt fyrsta mark fyrir aðalliðið strax á 5. mínútu.

Hann fékk boltann frá Raphinha og lét vaða við vítateigslínuna. Boltinn söng í netinu og frábær stund fyrir þennan efnilega leikmann.

Undrabarnið Lamine Yamal var næstur í röðinni og aftur var Raphinha arkitektinn. Hann komst í gegn vinstra megin, lék á markvörðinn og lagði boltann til hliðar á Yamal sem þurfti bara að hitta á markið til að skora og gerði það.

Yamal bætti við öðru marki úr vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks. Það var hans fjórða deildarmark á tímabilinu og allt virtist stefna í öruggan sigur Börsunga.

Levante beit hins vegar frá sér á lokakaflanum. Ivan Romero minnkaði muninn á 79. mínútu og Roger Brugue bætti öðru marki við fyrir heimamenn þegar skammt var til leiksloka.

Það fór því aðeins um Barcelona en varamaðurinn Karim Adeyemi gekk endanlega frá leiknum með marki undir lokin.

Barcelona er á toppnum með 15 stig og þriggja stiga forystu á erkifjendur sína í Real Madrid. Levante er með fimm stig í 13. sæti.

Celta 1 - 1 Malaga
1-0 Ferran Jutgla ('41 )
1-1 Adrian Nino ('83 )

Levante 2 - 4 Barcelona
0-1 Xavi Espart ('5 )
0-2 Lamine Yamal ('19 )
0-3 Lamine Yamal ('48 , víti)
1-3 Ivan Romero ('79 )
2-3 Brugue ('88 )
2-4 Karim Adeyemi ('90 )

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona7+2421
2Atletico Madrid7+916
3Betis7+216
4Real Madrid7+1015
5Sevilla7+113
6Alaves7+511
7Deportivo7+210
8Real Sociedad7-410
9Villarreal7+18
10Athletic6+18
11Getafe7-38
12Vallecano7-58
13Osasuna7-78
14Celta7+27
15Espanyol707
16Racing Santander7-107
17Levante6-45
18Elche7-65
19Valencia7-94
20Malaga7-93
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.