„Fjárhagsstaða liðanna er kannski bara þannig að það er ekkert hægt að gera og við erum þar"

Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Okkur er refsað grimmilega. Þeir fá fjórar sóknir í fyrri hálfleik og skora úr þeim öllum þannig skelfilega lélegur varnarleikur." voru fyrstu viðbrögð Rúnars Páls Sigmundssonar þjálfara Fylkis eftir 6-1 tapið gegn Val í Árbænum fyrr í kvöld.
„Við byrjum leikinn fínt, fengum fín upphlaup. Við héldum ágætlega í boltann út á velli allan leikinn en okkur er refsað grimmilega í þessum sóknum hjá Val og við vorum bara eins og litlir strákar á móti fullorðnum karlmönnum í teignum okkar."
Fylkir er með þrjú stig eftir fyrstu fimm umferðirnar í Bestu deildinni og var Rúnar Páll spurður út í uppskeruna.
„Ég hefði nú alveg vilja fá meira út úr leikjunum á móti Keflavík og HK, það voru svona leikir sem við reiknuðum með að fá einhver stig út úr. Þetta verður töff fyrir okkur í sumar og við þurfum okkar besta leik alltaf og fækka þessum barnalegu mistökum sem við erum að gera í varnarleiknum og við náum að þétta það aðeins þá verður þetta allt í lagi."
Rúnar Páll Sigmundsson var spurður út í leikmanna hópinn og hvort hann væri sáttur með þann leikmanna hóp sem hann væri með í höndunum nú þegar eða hvort hann hafi reynt að styrkja hópinn eitthvað.
„Ég hef mikla trú á þessum leikmannahópi, það er margt mjög gott í þessum hópi og vel spilandi lið. Við höfum spilað vörnina hingað til ágætlega. Það er alltaf talað um að fá einhverja leikmenn en fjárhagsstaða liðanna er kannski bara þannig að það er ekkert hægt að gera neitt mikið meira og við erum bara þar. Það er bara ekki að fá leikmenn, þetta kostar allt mikla peninga, það þarf að borga þeim og standa við greiðslur."





