Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
   sun 03. maí 2026 10:20
Ívan Guðjón Baldursson
„Ekki hægt að bera okkur saman við PSG eða Bayern"
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Arsenal tekur á móti Atlético Madrid á þriðjudaginn í seinni viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar eftir 1-1 jafntefli í fyrri leiknum í Madríd.

Mikel Arteta þjálfari er gríðarlega spenntur fyrir seinni leikinn. Ef Arsenal tekst að sigra verður það í fyrsta sinn í 20 ár sem liðið fer alla leið í úrslitaleik keppninnar.

Þar myndi Arsenal mæta annað hvort Paris Saint-Germain eða FC Bayern sem eru með ógnarsterk lið. PSG er nálægt Frakklandsmeistaratitlinum á meðan Bayern er búið að tryggja Þýskalandsmeistaratitilinn.

Arsenal lagði Bayern að velli er liðin mættust í deildarkeppni Meistaradeildarinnar fyrir áramót og var svipað uppi á teningnum í fyrra. Arsenal lagði PSG sannfærandi að velli í deildarkeppninni en tapaði svo gegn stórveldinu þegar liðin mættust aftur í undanúrslitum.

Fyrri undanúrslitaleikur PSG gegn Bayern endaði 5-4 og er einstaklega minnisstæður fyrir að bjóða upp á ótrúlega mikil gæði og hraða í sóknarleiknum.

„PSG-Bayern er líklega besti fótboltaleikur sem ég hef nokkurn tímann séð. Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt. Þegar ég horfi á mínúturnar sem þessir leikmenn eru búnir að spila á tímabilinu og hversu ferskir þeir eru á þessum tímapunkti þá er ég ekki hissa," sagði Arteta.

„Leikmenn verða að vera mjög ferskir til að geta spilað svona fótbolta eins og í PSG-Bayern leiknum. Munurinn á deildunum sem við erum í er eins og munurinn á degi og nóttu. Við erum að keppa í tveimur mismunandi raunveruleikum svo það er ekki hægt að bera okkur saman."

Franska deildin og sú þýska eiga það sameiginlegt að þær innihalda aðeins 18 félög og því eru 34 leikir á deildartímabili, fjórum leikjum minna heldur en í enska boltanum.

Þá er samkeppnin á lægra stigi heldur en í ensku úrvalsdeildinni eða spænsku La Liga deildinni og því geta stórveldin leyft sér að hvíla lykilmenn oftar. Varaliðin hjá Bayern og PSG eru nægilega góð til að vera með í titilbaráttunni heimafyrir.

Til samanburðar þá væri ólíklegt að varaliði Arsenal tækist að næla sér í evrópusæti í ensku úrvalsdeildinni. Arteta getur því ekki leyft sér að hvíla lykilmenn jafn oft og Bayern eða PSG.

   28.04.2026 21:07
Meistaradeildin: Ótrúlegu markaregni lokið í París

Slapp
banner
banner
banner