„Ég er bara svekktur. Þetta var okkar slakasti leikur hingað til. Við vorum bara ólíkir sjálfum okkur, mér hefur fundist frammistaðan í síðustu tveim leikjum góð en í dag vorum við bara ólíkir okkur. Svekkjandi," sagði Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar eftir 2-1 tap gegn ÍA.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 2 ÍA
Viktor Jónsson skoraði sigurmarkið á 87. mínútu en hann slapp í gegn þar sem enginn í Stjörnunni var í vörn.
„Þetta er bara lélegur varnarleikur, menn eru bara sofandi. Fólk horfir á þetta mark og það sér það bara fyrir sig," sagði Jökull.
Stjörnuliðið hefur verið að spila með þriggja manna varnarlínu á tímabilinu og breytt leikstíl sínum töluvert frá því hvernig þeir spiluðu undir lok síðasta tímabils.
„Hingað til hefur mér fundist þetta hafa komið bara mjög vel út. Fyrstu fjóru leikina það finnst mér hafa gengið vel. Mörkin sem við fáum á okkur hafa ekkert með það að gera. Þegar þú færð mikið af mörkum á þig þá leitar fólk í einhverjar skýringar, og þegar eitthvað er öðruvísi en áður þá er auðvelt að grípa í það. Mér fannst þetta ekki ganga vel í dag, mér fannst þessi leikur ganga bara verr en síðustu leikir," sagði Jökull.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.























