Fotbolti.net
03.06.17 - 19:34
Mist Rúnarsdóttir

Sandra María: Allir með okkur í þessu

Auglýsing
Sandra María spilaði 90 mínútur í dag og leiddi lið sitt áfram í bikarnum

Sandra María spilaði 90 mínútur í dag og leiddi lið sitt áfram í bikarnum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Borgun
<i>„Þetta er bara ótrúlega gaman og frábær úrslit sem við náðum á erfiðum útivelli þannig að við erum mjög sáttar,“</i> sagði Sandra María Jessen, kampakátur fyrirliði Þórs/KA sem er á leið í 8-liða úrslit Borgunarbikarsins eftir sigur á Breiðablik.
„Okkur líður alltaf vel. Við getum ekki alltaf verið meira með boltann en þá gildir að vinna saman. Færa liðið vel á milli og við gerðum þetta mjög vel. Þetta spilaðist eins og við lögðum upp.“

„Það gengur rosalega vel. Það eru allir með manni í þessu og fólk er farið að hafa trú á þessu með okkur. Það hjálpar okkur ennþá meira og gefur smá bensín í leikina,“
sagði Sandra María sem segist ekki eiga sér neina óska mótherja í 8-liða úrslitunum.

Fyrirliðinn spilaði 90 mínútur í fyrsta sinn í sumar og er óðum að finna sitt fyrra form. Hún ætlar að nýta landsliðspásuna í að komast í enn betra stand.

„Þetta er allt að koma. Þetta er allt á uppleið. Mér leið mjög vel og það var gaman að fá fyrstu 90 mínúturnar í sumar. Núna er bara að byggja ofan á þetta og komast í ennþá betra stand. Ég ætla að nýta tímann vel í pásunni. Hlaupa og hlaupa og koma mér í betra stand.“

„Við stelpurnar hérna munum æfa áfram saman. Tvær mexíkóskar fara út í landsliðsverkefni og þrjár að fara með U19 en annars er hópurinn bara góður. Við munum æfa vel heima og taka einhverjar aukaæfingar til að komast í betra stand.“


Aðspurð segir Sandra María Þór/KA ætla halda áfram á sömu braut þegar deildin hefst að nýju þann 16. júní.

„Það er ekkert annað í boði. Við verðum að standa undir væntingunum sem eru komnar á liðið.“

Nánar er rætt við Söndru Maríu í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.