„Þetta leggst mjög vel í mig. Mér fannst við góðar á móti þeim síðast. Ég býst ekki við neinu öðru en að við sýnum alvöru leik hérna út í Póllandi. Við viljum þessi þrjú stig," sagði markvörðurinn Telma Ívarsdóttir þegar hún ræddi við Fótbolta.net í dag fyrir utan hótel landsliðsins í Kraká í Póllandi.
Framundan á föstudaginn er mikilvægur leikur hjá íslenska landsliðinu gegn Úkraínu í undankeppni HM.
Framundan á föstudaginn er mikilvægur leikur hjá íslenska landsliðinu gegn Úkraínu í undankeppni HM.
Stelpurnar unnu 1-0 sigur á Úkraínu á Laugardalsvelli fyrir stuttu og við getum lært mikið af þeim leik.
„Við þurfum þessi þrjú stig og við viljum þau. Við ætlum að sýna það á föstudaginn."
Góður tími á Ítalíu
Telma kom til ítalska stórliðsins Inter á láni frá skoska félaginu Rangers í byrjun árs og samningurinn gilti út tímabilið. Hún er núna á förum frá Inter en óvíst er hvað tekur við hjá henni.
„Tíminn á Ítalíu var geggjaður, hann leið mjög hratt en ég nýtti hann vel. Ég er mjög ánægð með þessa mánuði sem ég fékk," sagði Telma.
Telma var varamarkvörður á eftir Cecilíu Rán Rúnarsdóttur hjá Inter og þá spilar Karólína Lea Vilhjálmsdóttir einnig með liðinu. Karólína lýsti því yfir í viðtali við Fótbolta.net í gær að hún væri mjög sorgmædd að missa Telmu sem hefur nánast verið herbergisfélagi hennar en þær hafa búið á móti hvor annarri í Mílanó.
„Við bjuggum á sömu hæð, svona tíu skref á milli okkar. Auðvitað er þetta leiðinlegt en svona er fótboltinn."
„Það er ekki sjálfgefið að vera með vinkonum sínum í félagsliði líka. Þetta var virkilega skemmtilegt. Ég er bara samningsbundin Rangers og þangað til annað kemur í ljós er ég leikmaður þeirra."
Er einhver séns að þú komir heim?
„Nei, ég held ekki. Allavega ekki strax."
Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.






















