Gulli Jóns: Voru allt að því grófir en við eigum að þola það
Auglýsing

Gunnlaugur Jónsson.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Gunnlaugur Jónsson.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, var svekktur eftir tap gegn Leikni í framlengdum leik í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins. Breiðhyltingar verða í pottinum þegar dregið verður í undanúrslit á morgun.
„Það er gríðarlega svekkjandi að detta út þegar maður er svona nálægt undanúrslitum. Ég vil hrósa Leiknisliðinu. Þeir voru þéttir fyrir og baráttuglaðir,\" sagði Gunnlaugur.
„Mér fannst hugarfarið ekki í lagi í fyrri hálfleik. Síðustu 20 mínúturnar í seinni hálfleik voru gríðarlega góðar. Þá gerðum við harða atlögu að sigurmarkinu.\"
„Leiknismenn voru fastir fyrir, þeir voru allt að því grófir en við eigum að þola það.\"
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.