Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 03. júlí 2020 11:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alls ekki víst að Wisdom spili meira á tímabilinu eftir stunguárásina
Wisdom varð fyrir stunguárás í Liverpool.
Wisdom varð fyrir stunguárás í Liverpool.
Mynd: Getty Images
Phillip Cocu, stjóri Derby County, er ekki viss um að varnarmaðurinn Andre Wisdom spili meira á þessu tímabili.

Wisdom var stunginn í Liverpool fyrr í þessari viku. Cocu hefur ráðlagt leikmanninum að taka eins mikinn tíma og hann vill til að jafna sig, bæði andlega og líkamlega.

Wisdom lenti sem sagt í því að fjórir grímuklæddir menn stálu úri af honum og stungu hann í leiðinni snemma á sunnudagsmorgun.

„Ég veit ekki hvort hann spili meira á þessu tímabili. Það er undir honum komið og það veltur mikið á því hvernig honum gengur að jafna sig," segir Cocu.

Wisdom hefur spilað 20 leiki fyrir Derby á þessu tímabili, en liðið er allt í einu komið í baráttuna um umspil í Championship-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner