Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 03. júlí 2021 22:30
Victor Pálsson
Bruno: Býst við að ég þurfi að bíða eftir áttunni í ár til viðbótar
Mynd: EPA
Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, grínaðist á Twitter í gær eftir tilkynningu frá félaginu.

Juan Mata hefur skrifað undir nýjan samning við enska stórliðið og er samningsbundinn til næsta árs.

„Ég býst við því að ég þurfi að bíða eftir áttunni í ár til viðbótar..." skrifaði Fernandes við Twitter færslu Man Utd.

Það var auðvitað allt í góðu gert en Fernandes bætti síðar við að þessi samningur Mata væri vel verðskuldaður og að hann væri fyrirmynd innan sem utan vallar.

Mata hefur klæðst treyju Man Utd í mörg ár en hann kom til félagsins frá Chelsea árið 2014.

Fernandes mun líklega taka við áttunni þegar Mata fer en verður eins og hann segir að bíða. Fernandes er í dag með númerið 18.


Athugasemdir
banner
banner
banner