Íslenska kvennalandsliðið æfði í Þýskalandi í fyrsta sinn í gær, en liðið er þar í landi í æfingabúðum fyrir Evrópumótið sem er framundan.
Það er virkilega góð stemning í hópnum og gaman á æfingasvæðinu eins og mátti sjá á myndbandi sem KSÍ birti á samfélagsmiðlum sínum í gær. Í myndbandinu rífast Hallbera Guðný Gísladóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir í léttum dúr um það hvor þeirra hafi svindlað meira á æfingunni.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, liðsfélagi þeirra, var aðeins spurð út í þetta myndband í viðtali í gær.
„Það er alltaf gaman á landsliðsæfingum eins og sést á ‘contentinu’ sem er gefið út. Það er alltaf smá rifist og svoleiðis. Það er alltaf rosalega gaman.”
„Berrý (Hallbera), þú þarft aðeins að slaka á sko. Það myndast rosalegur hiti, sérstaklega í þriggja liða reit. En nei nei, þetta er alltaf jafngaman,” sagði Karólína Lea.
Myndbandið umrædda má sjá hér fyrir neðan, en landsliðið heldur áfram að æfa í dag.
Sjá einnig:
Líklegust til að svindla í spilum? - Sé ansi dugleg að láta í sér heyra
"Við svindluðum ekki meira en þið!" @ingibjorg25 og @HallberaGisla ekki sammála þarna. 😁😁😁 pic.twitter.com/XNamZPOzHt
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) July 2, 2022
Athugasemdir