Fotbolti.net
03.07.26 - 09:25
Elvar Geir Magnússon

Hvað gerðist í nótt? - Örflagan sem bjargaði Ronaldo og félögum

Hér má sjá línurit á skjánum sem sýnir að sérstök örflaga í boltanum greindi snertingu.

Hér má sjá línurit á skjánum sem sýnir að sérstök örflaga í boltanum greindi snertingu.

Canon

Mynd: Skjáskot

Ótrúlegar senur áttu sér stað í leik Portúgals og Króatíu í 32-liða úrslitum í nótt. Bæði lið skoruðu í uppbótartíma en mark Króatíu var dæmt af vegna örflögu sem er inn í boltanum.

Portúgal komst í 2-1 í uppbótartímanum en á þrettándu mínútu hans kom Króatía boltanum í netið, Josko Gvardiol skoraði af stuttu færi og allt tryllist af fögnuði. En nokkrum mínútum síðar var markið dæmt af...

Spurningin var: Hafði Igor Matanovic sem fór upp og reyndi að skalla boltann í aðdragandanum snert boltann eða ekki? Ef hann snerti hann þá var þetta rangstaða. Ef hann snerti ekki boltann var þetta ekki rangstaða.

Það er örflaga í HM-boltanum sem skynjar hvort snerting eigi sér stað. Örlítil virkni sást í skynjaranum og því var dæmd rangstaða. Það sást ekki á myndum hvort snerting hafi átt sér stað en örflagan greindi snertingu.

Espen Eskas dómari leiksins var sendur í skjáinn til að skoða atvikið og var honum sýnt línurit þar sem smá bunga sýndi að það hefði verið órlítil snerting. Því var markið dæmt af og Portúgal fór áfram! Ein stærsta VAR ákvörðun sögunnar.
Sjáðu háspennuna í uppbótartímanum: Ramos hetjan og boltaskynjarinn dæmdi Króata úr leik
TENGT EFNI

Sjáðu háspennuna í uppbótartímanum: Ramos hetjan og boltaskynjarinn dæmdi Króata úr leik

Hvaða tækni er þetta?
Brynjar Ingi Erluson, fréttamaður Fótbolta.net, var á næturvaktinni og kallaði þetta 'boltaskynjara', sem er alveg prýðilegt orð. Þessi tækni var upphaflega tekin upp í krikket og er kölluð 'Snicko'.

Þessi tækni hefur verið þróuð í fótboltanum undanfarin ár og HM boltinn í ár er með örflögu sem sendir frá sér upplýsingar í rauntíma og lætur vita þegar boltinn er snertur.

Tæknin áður komið við sögu í keppninni
Svíar högnuðust á þessari tækni fyrr í keppninni. Mark Mattias Svanberg gegn Túnis var upphaflega dæmt af en örflagan skynjaði að Alexander Isak hefði rétt náð snertingu við boltann á undan og þá var Svanberg réttstæður. Dæmt var mark.

Ronaldo og félagar áfram
Cristiano Ronaldo og félagar í Portúgal fagna þessari tækni, þeir eru komnir áfram í 16-liða úrslit og mæta þar Spáni. Ronaldo var reyndar farinn af velli þegar þessi dramatík var komin af stað og það munaði ekki miklu að hann væri búinn að spila sinn síðasta HM leik!

Hér má sjá útskýringarmyndband frá Sky Sports:

Skyndilega var slökkt á fögnuði Króata.

Skyndilega var slökkt á fögnuði Króata.

Canon

Mynd: EPA

Trionda HM boltinn er með örflögu.

Trionda HM boltinn er með örflögu.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.