Fotbolti.net
03.07.26 - 01:12
Brynjar Ingi Erluson

HM: Portúgal áfram eftir sturlaðan lokakafla

Cristiano Ronaldo skoraði fyrsta mark sitt í útsláttarkeppni HM

Cristiano Ronaldo skoraði fyrsta mark sitt í útsláttarkeppni HM

Canon

Mynd: EPA

Portúgal 2 - 1 Króatía
0-1 Ivan Perisic ('53 )
1-1 Cristiano Ronaldo ('68 , víti)
2-1 Goncalo Ramos ('90 )
Portúgal er komið í 16-liða úrslit heimsmeistaramótsins eftir dramatískan 2-1 sigur á Króatíu í Toronto í Kanada í kvöld. Cristiano Ronaldo skoraði sitt fyrsta mark í útsláttarkeppni HM, en það var Goncalo Ramos sem varð hetjan í uppbótartíma.

Portúgalir voru líklegri aðilinn í fyrri hálfleik og fengu betri færi, en það vantaði upp á gæðin á síðasta þriðjungi vallarins.

Bruno Fernandes reyndi á Dominik Livakovic snemma leiks eftir sendingu frá Rafael Leao, en markvörður Króata var vel á verði og varði örugglega.

Annars voru færin ekki mörg og fyrri hálfleikurinn ekkert sérstaklega mikið fyrir augað. Portúgal var með yfirhöndina en flýtti sér of mikið í sínum aðgerðum og náði ekki að opna leikinn.

Króatar komu mun líflegri til leiks í síðari hálfleik og Portúgalir voru værukærir í varnarleiknum. Mateo Kovacic átti hörkuskot sem virtist stefna á markið en endaði í hliðarnetinu.

Höggið kom fyrir Portúgal á 54. mínútu. Josip Stanisic fékk alltof mikið pláss hægra megin og kom boltanum fyrir markið á fjærstöng, þar sem Ivan Perisic var mættur og afgreiddi færið snyrtilega. Slakur varnarleikur hjá Portúgal og Króatar komnir í stuð. Á sama sögulegt mark hjá Perisic sem tók markametið af Davor Suker og varð markahæsti leikmaður Króata í sögu HM.

Króatía kom boltanum aftur í netið skömmu síðar, en markið var dæmt af vegna rangstöðu þar sem Nikola Vlasic var vel fyrir innan. Næst átti Leao hörkuskot í þverslá áður en mark var tekið af Ronaldo.

Ronaldo fékk þá frábæra háa sendingu inn fyrir, tók boltann laglega með fyrstu snertingu og setti hann framhjá Livakovic í netið. Þetta var tæpt þegar myndir VAR voru skoðaðar, en hausinn á Ronaldo var rétt fyrir innan.

Ronaldo hafði beðið lengi eftir fyrsta marki sínu í útsláttarkeppni HM en biðin tók enda þegar Vlasic braut á Renato Veiga í teignum eftir hornspyrnu.

Vlasic var klaufalegur og reif Veiga niður. Réttilega var dæmd vítaspyrna og auðvitað fór Ronaldo á punktinn. Hann fann ekki fyrir neinni pressu, hljóp ákveðinn að boltanum og setti hann hægra megin í markið. Þungu fargi létt af Ronaldo.

Eftir vatnspásu fóru Króatar aftur að ógna. Kovacic átti tvö frábær skot sem Diogo Costa varði meistaralega og hélt Portúgal inni í leiknum.

Á 81. mínútu slapp Petar Sucic allt í einu einn gegn Costa og skoraði, en það var þriðja markið sem var dæmt af í leiknum. Það virtist mjög tæpt áður en línurnar voru teiknaðar í VAR-herberginu, en þegar þær birtust kom í ljós að Sucic var jafnvel meira rangstæður en Ronaldo hafði verið fyrr í leiknum.

Rétt eftir að markið var dæmt af var Ronaldo óvænt tekinn af velli og Ruben Neves settur inn á í hans stað. Það þurfti engan sérfræðing til að sjá að Ronaldo var ekki sáttur við ákvörðun Roberto Martinez, en hann sleppti öllu veseni.

Á lokamínútunum skiptust liðin á að koma sér í góðar stöður. Veiga skallaði rétt framhjá eftir hornspyrnu og hinum megin átti Mario Pasalic skalla framhjá.

Það var lítill munur á liðunum og mikil þreyta farin að segja til sín. Hvorugt liðið vildi fara í framlengingu og Portúgal tókst að forðast hana með marki í fjórðu mínútu uppbótartíma.

Leao átti þá frábæra fyrirgjöf frá vinstri á fjærstöngina, þar sem Ramos reis hæst og stangaði boltann í nærhornið. Stór ákvörðun hjá Martinez að taka Ronaldo af velli og hafa Ramos einan uppi og hún skilaði sigrinum.

Það var mikil dramatík á síðustu mínútum uppbótartímans. Þegar tvær og hálf mínúta var komin framyfir setti Josko Gvardiol boltann í netið. Igor Matanovic skallaði fyrirgjöf aftur fyrir sig og úr því skoraði Gvardiol.

Það tók VAR smá tíma að úrskurða um það hvort Matanovic hafi snert boltann með höfðinu, en það er sérstakur nemi í boltanum sem segir til um ef hann var snertur eða ekki, og það sást að það grafinu að hann var snertur. Markið stóð því ekki.

Svekkjandi fyrir Króata, sem voru alls ekki síðri aðilinn og sérstaklega sterkir í síðari hálfleik.

Portúgal er komið í 16-liða úrslit, þar sem Evrópumeistarar Spánar bíða. Luka Modric kvaddi heimsmeistaramótið og HM-draumur hans og Króata er úr sögunni í bili.
Ivan Perisic fagnar sögulegu marki sínu

Ivan Perisic fagnar sögulegu marki sínu

Canon

Mynd: EPA

Ronaldo var ekkert sérstaklega ánægður þegar hann var tekinn af velli

Ronaldo var ekkert sérstaklega ánægður þegar hann var tekinn af velli

Canon

Mynd: EPA

Goncalo Ramos var hetjan á fjórðu mínútu í uppbótartíma

Goncalo Ramos var hetjan á fjórðu mínútu í uppbótartíma

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.