Fotbolti.net
03.07.26 - 01:33
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu háspennuna í uppbótartímanum: Ramos hetjan og boltaskynjarinn dæmdi Króata úr leik

Sjáðu háspennuna í uppbótartímanum: Ramos hetjan og boltaskynjarinn dæmdi Króata úr leik
Canon

Mynd: EPA

Lokakaflinn í leik Portúgals og Króatíu var einn sá rosalegasti á HM til þessa, en það var Goncalo Ramos sem reyndist hetjan með frábæru skallamarki.
HM: Portúgal áfram eftir sturlaðan lokakafla
TENGT EFNI

HM: Portúgal áfram eftir sturlaðan lokakafla

Staðan var 1-1 þegar uppbótartíminn hófst og spennan mikil á vellinum.

Króatar höfðu verið líklegri, en það var Portúgal sem náði að höggva til baka og tryggja sér sigurinn með marki Ramos.

Rafael Leao átti konfektfyrirgjöf á fjærstöngina, erfiðan bolta fyrir varnarmenn Króata að eiga við. Ramos stökk hæst og stýrði boltanum með höfðinu í netið.

Portúgal ætlaði eftir það að halda þetta út og tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum. Tvær og hálf mínúta var komin fram yfir uppgefinn uppbótartíma þegar Króatar settu boltann í netið.

Fyrirgjöfin kom inn á teiginn á Igor Matanovic, sem fór upp í boltann. Þaðan fór hann áfram á Mario Pasalic, sem var greinilega í rangstöðu. Pasalic kom boltanum fyrir á Josko Gvardiol, sem tæklaði hann í netið.

VAR skoðaði markið að sjálfsögðu og ákvað að dæma það ógilt. Skynjarar eru í HM-boltanum og þeir voru notaðir til að sjá hvort Matanovic hefði raunverulega snert boltann í aðdragandanum.

Virkni sást í skynjaranum og því var dæmd rangstaða, enda taldist Matanovic hafa flikkað boltanum aftur fyrir sig á Pasalic.

Ótrúlega svekkjandi fyrir Króata, því snertingin virtist nánast engin. Dómararnir verða þó að treysta því að skynjarinn virki eins og hann á að gera.

Hér fyrir neðan má sjá markið hjá Ramos og markið sem var tekið af Króatíu


Croatia disallowed goal against Portugal 90+13'
by
u/977x in
soccer



Portugal [2]-1 Croatia - Gonçalo Ramos 90+4'
by
u/977x in
soccer
Skynjarinn í boltanum sýnir að Matanovic snerti boltann

Skynjarinn í boltanum sýnir að Matanovic snerti boltann

Canon

Mynd: Af netinu

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.