Fotbolti.net
03.08.17 - 22:15
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson

Ólafur Þór: Dagskráin í ágúst hefði orðið alveg skelfileg

Auglýsing
Stjarnan náði ekki að skora gegn öguðum Grindavíkurstúlkum

Stjarnan náði ekki að skora gegn öguðum Grindavíkurstúlkum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari Íslandsmeistara Stjörnunnar var óánægður með tvö töpuð stig gegn nýliðum Grindavíkur í kvöld en leikurinn endaði með markalausu jafntefli.

<i>„Það er fúlt að gera jafntefli og tapa tveimur stigum. Þetta var leikur sem við stjórnuðum alla leið en þær spiluðu mjög skynsamlega og bara hrós til þeirra hvernig þær lögðu leikinn upp,\"</i> sagði Ólafur.

Þrátt fyrir jafnteflið, var Ólafur ágætlega sáttur með spilamennskuna hjá Stjörnunni.

<i>„Mér fannst hún fín þangað til við komumst að teignum þeirra. Þá var þetta hálf endaslappt. Við náðum ekki mörgum opnum færum en fengum nóg til að klára leikinn, en gerðum það ekki.\"</i>

Þrjár af fjórum leikmönnum í framlínu Stjörnunnar í dag voru á Evrópumótinu en það er engin afsökun í því að mati Ólafs.

<i>„Það er engin afsökun í neinu svoleiðis. Við komum hérna og spiluðum með okkar fólk. Menn eiga að vera búnir að ná sér ágætlega eftir EM. Það á bara að vera upprennandi að vera þar þó að allir vonuðust eftir betri árangri. En menn verða bara að skipta um gír þegar komið er til Íslands, það er nýtt mót og hitt er búið.\"</i>

Leikurinn í kvöld vakti töluvert umtal fyrr í dag þar sem það þurfti að færa leikinn vegna þátttöku Stjörnunnar í Meistaradeild Evrópu og voru Grindvíkingar sérstaklega óánægðir með leikdaginn.

<i>„Ég get voða lítið sagt um þetta. Þetta var rætt við KSÍ og Grindavík fyrir þremur vikum um að þetta væri möguleiki, svo er það KSÍ sem tekur ákvörðun á endanum. Hjá okkur, dagskráin í ágúst hefði orðið alveg skelfileg og er mjög erfið. Við hefðum átt að spila við Grindavík daginn áður en við fórum út, spila svo þrjá leiki þar á viku og fengjum svo einn dag í hvíld og koma svo heim að spila aftur. Þetta er eitthvað sem á ekki að vera. KSÍ gat brugðist við þessu víst að landsliðið fór ekki lengra en það fór. Við fengum að vita það fyrir tímabilið að þessi leikur yrði til vandræða. Ég skil alveg að það er verið að plana sitt prógram og þau hafi ekki verið ánægðir með þetta en ég held að þau séu ágætlega ánægð í dag.\"</i>
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.