Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 03. ágúst 2022 12:00
Elvar Geir Magnússon
Everton vinnur í að fá hinn umdeilda Idrissa Gueye aftur
Idrissa Gueye er 32 ára.
Idrissa Gueye er 32 ára.
Mynd: Getty Images
Everton er í viðræðum við Paris St-Germain um að kaupa senegalska miðjumanninn Idrissa Guaeye aftur til félagsins. BBC segir viðræðurnar vel á veg komnar.

Gueye lék með Everton 2016-2019 áður en PSG keypti hann á um 30 milljónir punda.

Everton hefur hinsvegar ekki áhuga á að fá Ross Barkley aftur til félagsins frá Chelsea en hann var á Goodison Park á lánssamningi.

Guaye skoraði fjögur mörk í 33 leikjum fyrir Frakklandsmeistara PSG á síðasta tímabili og hjálaði Senegal að vinna Afríkukeppnina.

Gueye vakti mikið umtal þegar hann hafnaði því að spila með PSG í leik þar sem liðið var með regnbogaliti á treyjum sínum til að sýna LGBTQ+ fólki stuðning.
Athugasemdir
banner
banner
banner