Fotbolti.net
15.08.26 - 19:36
Snæbjört Pálsdóttir

Agla María ánægð með liðsfélaga eftir toppslaginn - „Hún henti sér fyrir alla bolta“

Auglýsing
Agla María Albertsdóttir skoraði þriðja mark Breiðabliks í risasigri á FH í Kaplakrika.

Agla María Albertsdóttir skoraði þriðja mark Breiðabliks í risasigri á FH í Kaplakrika.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Breiðablik vann risastóran 3-0 sigur á FH í toppslag Bestu deildarinnar í Kaplakrika í dag. Agla María Albertsdóttir skoraði þriðja mark Blika með aukaspyrnu sem fór alla leið í netið eftir að Sunna Rún Sigurðardóttir truflaði Aldísi í marki FH.

Lestu um leikinn: FH 0 - 3 Breiðablik

„Bara frábær tilfinning. Ótrúlega mikill baráttusigur, algjör liðsigur og virkilega sterkt að koma á Kaplakrika og klára þetta,“ sagði Agla María eftir leik.

Agla María viðurkenndi að hún hefði ekki endilega átt von á því að aukaspyrnan myndi enda í netinu.

„Klárlega ekki. Ég var nú bara að koma boltanum á svæðið og vona að einhver myndi hlaupa á hann. Sunna truflar Aldísi klárlega og þess vegna fer boltinn inn. Virkilega gaman að skora en helst bara að klára þennan leik, það er það sem skiptir öllu máli.“

Blikar hafa verið undir miklu álagi undanfarið, bæði vegna Evrópuverkefna og veikinda í hópnum. Agla María segir mótlætið þó hafa þjappað liðinu saman.

„Ég held að þetta hafi klárlega þjappað liðinu mikið saman, að fara út og lenda í hellings mótlæti. Svo var virkilega gott að fá Úlfu núna í glugganum, hún mun gera mikið fyrir okkur í komandi verkefnum.“

Hún nefndi einnig Þórdísi Elvu og breiddina í hópnum.

„Frábært að hún sé komin inn. Mér finnst við vera að koma með stærri og betri hóp sem skiptir ótrúlega miklu máli upp á lokasprettinn.“

Bryndís Arna Níelsdóttir er einnig að koma aftur af stað eftir meiðsli og Agla María segir ljóst hvaða gæði hún geti fært liðinu.

„Ég held að allir séu að vonast eftir því og örugglega mest hún sjálf að komast í gang. Ef hún kemst í gang þá er þetta náttúrulega markamaskína. Það eru klárlega mikil gæði þarna og við vonum innilega að hún komi sterk inn.“

Aðspurð hvað hafi skilið liðin að í dag sagði Agla María það fyrst og fremst hafa verið vinnusemi og liðsheild Blika.

„Mér fannst það vera baráttan og sigurviljinn hjá okkur. Mikið hrós á alla leikmenn í liðinu. Mér fannst þær berjast um hvern einasta bolta.“

„Það var lýsandi að fylgjast með Karítas Tómasdóttur í þessum leik. Hún gjörsamlega henti sér fyrir alla bolta, eins og fleiri leikmenn. Það voru allar tilbúnar að henda sér fyrir alla bolta og gera hvað sem er fyrir liðsfélagann. Það var klárlega það sem skóp þennan sigur."

Með sigrinum komst Breiðablik á topp deildarinnar 

„Það er náttúrulega alveg nóg eftir, fáránlega mikið af leikjum. Þetta er skref í þá átt en það er svo ótrúlega mikið eftir.“

„Það eru þrjú stig á milli núna, við eigum hörkuleik á móti Stjörnunni í næstu viku og erum að fara í Evrópuverkefni. Við horfum á þetta sem bara auka þrjú stig. Auðvitað sérstaklega skemmtilegt að koma inn í Kaplakrika og taka þau en það er nóg eftir.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.