15.08.26 - 20:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Eiður Orri: Draumamark sem kveikti á manni
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Mætum norður og tökum fáránlega sterk þrjú stig og kasta okkur aftur upp í 5. sæti. Ég er mjög ánægður með liðsheildina og spilamennskuna," sagði Eiður Orri Ragnarsson sem skoraði bæði mörk Keflavíkur í sigri á Þór í dag.
Lestu um leikinn: Þór 0 - 2 Keflavík
„Ég byrjaði frekar hægt fram að fyrsta markinu. Svo setur maður draumamark og það kveikti aðeins á manni. Það var ekkert annað í stöðunni en að skjóta," sagði Eiður Orri.
Eiður Orri kom liðinu yfir með glæsilegu skoti og innsiglaði sigurinn eftir góða skyndisókn.
„Við vorum búnir að liggja smá í vörn, smá panikk. Ekkert endilega hætta en svo fáum við góða skyndisókn. Mua sendir mig í gegn og það var ekkert annað í stöðunni en að hlaupa og klára þetta," sagði Eiður Orri.
Keflavík situr í fimmta sæti eftir leikinn. Eiður sagði að það væri klárt markmið að vera í topp sex.