Fotbolti.net
15.08.26 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sama sagan hjá Þór - „Á stórum hluta ekki líklegir til að koma til baka"

Auglýsing
Sama sagan hjá Þór - „Á stórum hluta ekki líklegir til að koma til baka"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þór tapaði í nýliðaslagnum í Bestu deildinni gegn Keflavík á Akureyri í dag. Fótbolti.net ræddi við Sigurð Heiðar Höskuldsson, þjálfara Þórs, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: Þór 0 - 2 Keflavík
„Þetta er sama sagan. Við klárum sóknirnar illa og náum ekki að vera gæðameiri á síðasta þriðjung. Við erum ragir við að klára sóknirnar með skoti. Erum ekki nógu graðir á meðan þeir taka skot fyrir utan teig, skot sem við erum ekki að taka og erum ekki að koma okkur í," sagði Siggi.

„Mér fannst Keflvíkingarnir betri meiri hlutann af seinni hálfleik. Mér fannst við ekki setja nógu mikið hjarta í þetta, ekki nægilega grimmir. Þeir voru að pikka upp alla seinni bolta og það er ótrúlega svekkjandi þar sem það var alls ekki það sem við ætluðum okkur."

Það eru þrír leikir eftir af mótinu fyrir tvískiptingu. Liðið heimsækir Stjörnuna og ÍBV í næstu leikjum og síðasti leikurinn er heimaleikur gegn FH.

„Fyrir tveimur tímum fannst mér við ógeðslega góðir og flott lið. Mér finnst það ennþá. Ég vona að leikmönnunum líði þannig þegar þeir eru búnir að jafna sig á þessu. Mætum aftur til æfinga eftir helgi og staðráðnir í að fara safna stigum," sagði Siggi.

„Það er rosalega mikilvægt að við mætum í þessa leiki með aðeins stærra hjarta og meiri eld í okkur heldur en við gerðum í dag. Mér fannst við voða litlir í okkur í seinni hálfleik og á stórum hluta ekki líklegir til að koma til baka. Það er svekkjandi, ég held að leikmennirnir séu svekktir með þessa frammistöðu sjálfir og við teymið að hafa ekki náð að fýra betur upp í þessu. Mjög sárt að líta til baka á þennan leik."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.