Fotbolti.net
15.08.26 - 19:55
Kári Snorrason

Þrjú lið með augastað á Jackson

Kominn aftur til Chelsea eftir lán hjá Bayern.

Kominn aftur til Chelsea eftir lán hjá Bayern.

Canon

Mynd: EPA

Þrjú lið fylgjast grannt með stöðu mála hjá senegalska framherjanum Nicolas Jackson, leikmanni Chelsea.

Liðin sem um ræðir eru Aston Villa, Tottenham og Atlético Madrid. Jackson lék á láni með Bayern Munchen á síðasta tímabili en er nú snúinn aftur í herbúðir Chelsea.

Lundúnaliðið er sagt vilja fá 60 milljónir punda fyrir leikmannin en félögin þrjú hafa lítinn áhuga á að greiða svo mikið fyrir Senegalann.

Chelsea keypti Jackson frá Villareal fyrir þremur árum á rúmar þrjátíu milljónir punda. Hann hefur skorað 30 mörk í 81 leikjum fyrir félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.