Fotbolti.net
15.08.26 - 20:30
Kári Snorrason
Livey

Sjáðu Viðar Örn slá markamet Selfyssinga

Sjáðu Viðar Örn slá markamet Selfyssinga
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Viðar Örn Kjartansson fór hamförum í 6-2 sigri Selfoss á Fjölni fyrr í dag þar sem hann skoraði fimm mörk og lagði upp eitt.

Hann hefur nú skorað 28 mörk fyrir félagið í sumar í öllum keppnum sem er félagsmet samkvæmt tilkynningu félagsins..

Í 2. deildinni hefur Viðar skorað 19 mörk í fjórtán leikjum. Þá hefur hann jafnframt skorað fimm mörk í þremur leikjum í Gatorade bikarnum, fjögur mörk í tveimur leikjum í Mjólkurbikarnum og tvö mörk í tveimur leikjum í Lengjubikarnum.

Metið áttu þeir Hrovje Tokic og Sævar Þór Gíslason en þeir skoruðu mest 28 mörk á einu sumri fyrir Selfoss.
Viðar Örn með fimm mörk og stoðsendingu: Bara einn af þeim dögum
TENGT EFNI

Viðar Örn með fimm mörk og stoðsendingu: Bara einn af þeim dögum

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.