15.08.26 - 19:19
Kári Snorrason
Besta deild kvenna: Breiðablik með sannfærandi sigur í toppslagnum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH 0-3 Breiðablik
0 - 1 Edith Kristín Kristjánsdóttir (9')
0 - 2 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (42')
0 - 3 Agla María Albertsdóttir (72')
Lestu um leikinn
Breiðablik vann sannfærandi 3-0 sigur gegn FH í sannkölluðum toppslag í Bestu deild kvenna á Kaplakrikavelli fyrr í dag.
Um er að ræða efstu tvö lið deildarinnar en fyrir leikinn voru bæði lið með 33 stig.

Breiðablik byrjaði af krafti og strax á annarri mínútu ógnaði Kópavogsliðið að marki FH-inga en skot Edith Kristínar fór í varnarmann.
Á níundu mínútu var hin átján ára gamla Edith aftur á ferðinni og tókst að brjóta ísinn með laglegu skoti í fjærhornið eftir fyrirgjöf Öglu Maríu.
Við mark Blika hægðist örlítið á leiknum en eftir tæpan hálftíma átti Andrea Rán skot úr aukaspyrnu sem fór rétt framhjá marki Breiðabliks.
Edith Kristín komst í hættulegt færi skömmu síðar eftir vandræðargang í vörn FH en tilraun hennar framhjá markinu. Edith var nálægt því að skora aftur eftir sendingu Hrafnhildar Ásu en Deja Sandoval bjargaði á ögurstundu.
Ásdís Karen átti þá gott skot að marki Blika en boltinn rétt framhjá.
Skömmu fyrir hálfleik tvöfölduðu Blikar forystuna með marki frá Hrafnhildi Ásu sem slapp í gegn og setti boltann snyrtilega framhjá Aldísi, markverði FH.
Blikar með tveggja marka forystu í hálfleik og áttu bæði lið góð færi þegar lítið var búið af síðari hálfleik en boltinn vildi ekki inn.
FH-ingar þjörmuðu að Blikum um miðbik síðari hálfleiks en þéttur varnarmúnn Breiðabliks hélt.
Þá skoraði fyrirliði Breiðabliks hið mikilvæga þriðja mark á 72. mínútu beint úr aukaspyrnu. Þar við sat og Breiðablik vann 3-0 sigur í gífurlega mikilvægum leik.
Kópavogsliðið er nú með þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Breiðablik | 15 | +28 | 36 |
| 2 | FH | 15 | +24 | 33 |
| 3 | ÍBV | 15 | -2 | 24 |
| 4 | Stjarnan | 15 | +4 | 23 |
| 5 | Grindavík/Njarðvík | 15 | -6 | 19 |
| 6 | Þór/KA | 15 | -2 | 18 |
| 7 | Þróttur R. | 15 | -4 | 18 |
| 8 | Fram | 15 | -13 | 16 |
| 9 | Valur | 15 | -13 | 13 |
| 10 | Víkingur R. | 15 | -16 | 11 |