Guðni eftir toppslaginn: „Þessi leikur var ekki upp á einhvern Íslandsmeistaratitil“

Guðni var svekktur eftir 3-0 tap FH gegn Breiðabliki en segir liðið þurfa að draga lærdóm af stórleiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðni var svekktur eftir 3-0 tap FH gegn Breiðabliki en segir liðið þurfa að draga lærdóm af stórleiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH tapaði 0-3 gegn Breiðabliki í toppslag Bestu deildarinnar í Kaplakrika í dag. Guðni Eiríksson, þjálfari FH, var eðlilega svekktur eftir leik en tók ekkert af Blikunum.
„Eins og alltaf eftir tapleiki þá er maður fúll og svekktur. En við tökum lærdóm af þessu. Blikarnir unnu leikinn sanngjarnt og það er ekkert af þeim tekið.“
„Þær komu mikilli ákefð á leikinn og við réðum illa við ákefðina. Við fórum að spila leik sem er mjög ólíkur þeim leikstíl sem FH-liðið hefur spilað í sumar.“
„Við þorðum ekki að spila í gegnum þær, fórum að beita löngum boltum og vorum í alls konar brasi.“
Guðni var sérstaklega svekktur með annað mark Breiðabliks rétt fyrir hálfleik.
„Svekkjandi að fá þetta mark á sig, seinna markið þarna á 40. mínútu. Einhver langur bolti, skoppaði í gegnum svæðið og bam, mark. Algjör óþarfi.“
Hann sá þó miklu betra framlag hjá FH í síðari hálfleik.
„Miklu betra framlag hjá FH-liðinu í seinni hálfleik. Miklu líkara þeim leikstíl sem við viljum kenna okkur við. Við fengum færi til að skora og við erum vön að skora mörk.“
„Ég er viss um að ef við hefðum skorað í stöðunni 2-1 þá hefði komið einhver skrekkur í kroppinn hjá Blikum og við hefðum getað herjað enn frekar á þær.“
Þriðja mark Breiðabliks slökkti hins vegar endanlega í heimakonum.
„Svo fáum við þriðja markið á okkur, eitthvað sirkusmark, og þá fór botninn svolítið úr þessu.“
Aðspurður hvort taugarnar hefðu haft áhrif á FH-liðið í svona stórum leik sagði Guðni að það spilaði klárlega inn í.
„Við erum yngsta lið í deildinni. Meðalaldurinn er 21 ár og þetta er nýtt fyrir mörgum leikmönnum, að spila leik af þessari stærðargráðu, með svona umgjörð og marga áhorfendur.“
„FH-liðið er lið sem hefur aldrei unnið neitt. Við þurfum að læra það líka, að vera í þessari stöðu. Sá lærdómur og sú kennsla er klárlega mál og við stígum það skref einhvern tímann.“
Þetta var fyrsti leikur sumarsins þar sem FH tekst ekki að skora, en Guðni hefur ekki áhyggjur af því.
„Það skiptir engu máli. Þessi leikur var ekki upp á einhvern Íslandsmeistaratitil eða eitthvað slíkt. Hann var upp á þrjú stig. Það er nóg eftir af þessu móti.“
„Við höfum boðið upp á mörk í allt sumar og skorað töluvert fleiri mörk en önnur lið. Það koma bara mörk í næsta leik.“
Hildur Katrín og Ásdís Karen byrjuðu báðar leikinn fyrir FH og Guðni var ánægður með framlag þeirra.
„Mjög ánægður með þær. Gott að fá Hildi aftur heim. Hún hefur átt mjög gott tímabil í sumar og mætir hingað til baka full sjálfstrausts.“
„Ánægður með Ásdísi líka. Hún komst vel í takt við leikinn og kom sér í fína stöðu, sérstaklega í fyrri hálfleik. Hún er klárlega týpan af leikmanni sem hentar okkur og okkar leikstíl.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.
