15.08.26 - 19:03
Kári Snorrason
Besta deildin: Eiður Orri hetja Keflvíkinga á Akureyri

Skoraði bæði mörk Keflavíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á botni deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fara upp í 5. sæti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði bæði mörk Keflavíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík 2-0 Þór
0 - 1 Eiður Orri Ragnarsson (32')
0 - 2 Eiður Orri Ragnarsson (87')
Lestu um leikinn
Keflvíkingar unnu 2-0 sigur á Þór í eina leik dagsins í Bestu deild karla og þeim fyrsta í 19. umferð.

Þórsarar byrjuðu af krafti og fékk Victor Bertomeu gott færi í upphafi leiks en skallaði framhjá eftir fyrirgjöf Ágústar Hlynssonar.
Skömmu síðar lék Ásgeir Orri Magnússon, markvörður Keflvíkinga, sér að eldinum og munaði litlu að Bertomeu kæmist í boltann inni í teig Þórsara.
Eftir rúmlega þrjátíu mínútna leik skoraði Eiður Orri Ragnarsson glæsimark úr skoti af löngu færi sem söng í netinu.
Keflvíkingar leiddu með einu er liðin gengu til búningsklefa. Þeir fengu kjörið tækifæri til að tvöfalda forystuna þegar lítið var liðið af seinni hálfleik en Marin Mudrazija klúðraði einn gegn markverði.
Þórsarar áttu næsta högg en þar var Ásgeir Orri klaufalegur í marki Keflvíkinga og fór boltinn framhjá honum í teignum. Boltinn virtist á leiðini inn en Elvis Bwomono bjargaði á síðustu stundu.
Undir lok leiks tók Eiður Orri málin aftur í sínar eigin hendur er hann komst einn í gegn og lagði boltann snyrtilega framhjá Aroni Birki, markverði Þórs, og í netið.
Lokatölur 0-2 á VÍS vellinum á Akureyri. Keflvíkingar fara upp í 5. sæti en Þórsarar eru á botni deildarinnar.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 18 | +42 | 45 |
| 2 | KR | 18 | +25 | 39 |
| 3 | Fram | 18 | +11 | 37 |
| 4 | Breiðablik | 18 | +6 | 29 |
| 5 | Valur | 18 | -5 | 22 |
| 6 | ÍA | 18 | -6 | 22 |
| 7 | Keflavík | 18 | -6 | 22 |
| 8 | Stjarnan | 18 | -10 | 21 |
| 9 | ÍBV | 18 | -9 | 17 |
| 10 | FH | 18 | -10 | 17 |
| 11 | KA | 18 | -12 | 15 |
| 12 | Þór | 18 | -26 | 15 |