Fotbolti.net
03.08.22 - 21:20
Ívan Guðjón Baldursson

Solanke búinn að skrifa undir nýjan samning

Solanke búinn að skrifa undir nýjan samning
Canon

Mynd: Getty Images

Dominic Solanke er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Bournemouth en þessi 24 ára gamli sóknarmaður þótti á sínum tíma eitt mesta efni Evrópu.

Solanke var meðal bestu leikmanna Bournmeouth á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 29 mörk og gaf sjö stoðsendingar í 46 leikjum í Championship deildinni.

Bournemouth borgaði um 20 milljónir punda fyrir Solanke í janúar 2019 en þar áður hafði hann verið hjá Liverpool og Chelsea.

Hann var algjör lykilmaður hjá yngri landsliðum Englands þar sem hann skoraði 36 mörk í 70 leikjum og var sérstaklega markheppinn með U17, U20 og U21 liðunum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.