03.08.26 - 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Á leið til Fiorentina frá Juventus


Mynd: Bologna


Mynd: Bologna
Joao Mario, hægri bakvörður Juventus, er líklega á leið til Fiorentina.
Ítalski blaðamaðurinn Gianluca Di Marzio greinir frá þessu en félögin eru í viðræðum um lánssamning út tímabilið. Fiorentina getur síðan fest kaup á honum fyrir 8-9 milljónir evra.
Ítalski blaðamaðurinn Gianluca Di Marzio greinir frá þessu en félögin eru í viðræðum um lánssamning út tímabilið. Fiorentina getur síðan fest kaup á honum fyrir 8-9 milljónir evra.
Mario gekk til liðs við Juventus frá Porto síðasta sumar. Hann spilaði 13 leiki fyrir liðið áður en hann var lánaður til Bologna í janúar.
Hann spilaði 15 leiki fyrir Bologna og skoraði tvö mörk.
Hann spilaði 15 leiki fyrir Bologna og skoraði tvö mörk.
