Fotbolti.net
03.08.26 - 21:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Alex Freyr og Siggi Raggi misstu toppsætið

Alex Freyr og Siggi Raggi misstu toppsætið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alex Freyr Elísson kom inn á sem varamaður í fyrri hálfleik þegar NSÍ Runavík tapaði gegn HB í færeysku deildinni í kvöld.

Leiknum lauk með 3-1 sigri HB eftir að NSÍ komst yfir snemma í seinni hálfleik. NSÍ missti toppsætið en liðið er með 34 stig, jafn mörg stig og topplið KÍ Klaksvík eftir 17 umferðir. Sigurður Ragnar Eyjólfsson er þjálfari NSÍ.
Daníel Leó Grétarsson var í byrjunarliði Sonderjyske í 1-0 tapi gegn OB í 2. umferð dönsku deildarinnar. Sonderjyske er án stiga.

Logi Hrafn Róbertsson var ekki með Varnamo þegar liðið vann 3-1 sigur á Orebro í botnslag í næst efstu deild í Svíþjóð. Varnamo er í næst neðsta sæti með 14 stig, stigi á eftir Orebro sem er í sætinu fyrir ofan.

Sindri Kristinn Ólafsson var í markinu hjá Vasalund sem gerði 1-1 jafntefli gegn Sollentuna í þriðju efstu deild. Vasalund er í 12. sæti með 16 stig eftir 15 umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.