Fotbolti.net
03.08.26 - 15:08
Brynjar Ingi Erluson

Annar miðvörður á förum frá Chelsea

Annar miðvörður á förum frá Chelsea
Canon

Mynd: EPA

Enski varnarmaðurinn Trevoh Chalobah er að ganga til liðs við Como á Ítalíu. Hann verður annar miðvörðurinn sem Chelsea losar sig við í sumarglugganum.
Como náði samkomulagi við Chelsea um kaup á Chalobah í dag en þetta segir Fabrizio Romano á X.

Kaupverðið er 26 milljónir punda en getur hækkað í 30 milljónir verði ákveðin skilyrði uppfyllt.

Chalobah er 27 ára gamall miðvörður sem lék með Englandi á heimsmeistaramótinu í sumar. Hann er uppalinn hjá Chelsea og gegndi stóru hlutverki á síðasta tímabili en var ekki inni í myndinni hjá Xabi Alonso sem tók við liðinu í sumar.

Hjá Como hittir Chalobah aftur fyrir Cesc Fabregas sem lék með Chelsea á árunum 2014 til 2019. Þeir æfðu reglulega saman hjá Lundúnafélaginu en léku aldrei saman í keppnisleik.

Como tekur þátt í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn á komandi tímabili eftir að hafa hafnað í fjórða sæti ítölsku A-deildarinnar í fyrra.

Átta miðverðir eru í 41 manns leikmannahópi Chelsea en þeim fækkar bráðlega í sex þar sem Benoit Badiashile er líka á förum en hann er sagður semja við Napoli.

Axel Disasi gæti einnig yfirgefið félagið í sumar en hann hefur verið orðaður við Sambandsdeildarmeistara Crystal Palace.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.