Fotbolti.net
03.08.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spænski boltinn

Barcelona stendur ekki í vegi fyrir Ferran Torres

Barcelona stendur ekki í vegi fyrir Ferran Torres
Canon

Mynd: EPA

PSG hefur áhuga á Ferran Torres, leikmanni Barcelona og spænska landsliðsins.

Fabrizio Romano greinir frá því að franska félagið sé í viðræðum við umboðsmenn leikmannsins.
Barcelona vill ekki selja hann en ef Torres vill fara mun spænska félagið ekki standa í vegi fyrir honum.

Torres var hetja spænska landsliðsins þegar hann skoraði sigurmarkið í úrslitaleik HM gegn Argentínu í sumar.

Þessi 26 ára sóknarmaður gekk til liðs við Barcelona frá Man City árið 2022. Hann hefur skorað 65 mörk í 207 leikjum fyrir spænska liðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.