Fotbolti.net
03.08.26 - 19:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spænski boltinn

Bernardo Silva: Real Madrid er besta félag sögunnar

Bernardo Silva: Real Madrid er besta félag sögunnar
Canon

Mynd: Real Madrid

Bernardo Silva æfði í fyrsta sinn með Real Madrid í dag eftir félagaskiptin frá Man City í sumar.

Silva er 31 árs Portúgali en hann gekk til liðs við Real Madrid á frjálsri sölu eftir níu ár hjá City.
„Það var ómögulegt að segja ekki já þegar Real Madrid hringdi, ég hugsaði mig ekki tvisvar um. Maður fann hversu frábært það er að vera hérna þegar maður spilaði á móti þeim. Það hjálpar að vera nálægt fjölskyldunni, mjög nálægt Portúgal og í svipaðri menningu. Draumurinn að spila fyrir besta félag sögunnar eru forréttindi," sagði Silva.

Silva mun spila undir landa sínum Jose Mourinho sem tók við Real Madrid í sumar.

„Við höfum mæst nokkrum sinnum og nú erum við saman. Hann er þjálfari sem hefur mikla þýingu fyrir portúgalskan fótbolta. Maður hefur fylgst með liðunum hans síðan maður var lítill. ÉG er mjög ánægður að geta lært af honum," sagði Silva.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.