Fotbolti.net
03.08.26 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Efnilegur Bliki á reynslu hjá dönsku meisturunum

Efnilegur Bliki á reynslu hjá dönsku meisturunum
Canon

Mynd: Aðsend

Reynar Erik Henrysson var á reynslu hjá dönsku meisturunum í AGF í síðustu viku.

Hann er fæddur árið 2011 og er leikmaður Breiðabliks. Hann hefur síðasta árið verið í æfingahópum U15 landsliðsins.

Þetta er í annað skiptið sem hann fer til AGF en hann fór líka í heimsókn til félagsins í maí.
Reynar Erik, sem er vinstri kantmaður eða miðjumaður, æfði með U17 liði félagsins og fór svo á mót með liðinu sem haldið var í Þýskalandi.

Mikael Neville Anderson og Tómas Óli Kristjánsson eru leikmenn AGF og Kristian Hjaltason er leikmaður U19 liðs félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.