Fotbolti.net
03.08.26 - 17:00
Brynjar Ingi Erluson

Framherji Sunderland ekki til sölu

Framherji Sunderland ekki til sölu
Canon

Mynd: EPA

Sunderland hefur engan áhuga á að selja framherjann Wilson Isidor frá félaginu í sumarglugganum. Sky Sports segir frá þessu í dag.
Mikill áhugi er á Isidor sem skoraði sex deildarmörk fyrir Sunderland á síðasta tímabili.

Þessi 25 ára gamli leikmaður hefur meðal annars verið orðaður við West Ham sem féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor. Sunderland ætlar hins vegar ekki að hlusta á tilboð í hann.

Isidor er áfram mikilvægur hluti af áætlunum félagsins fyrir komandi tímabil þegar Sunderland tekur meðal annars þátt í Evrópudeildinni.

Hann hefur verið hjá Sunderland undanfarin tvö ár. Isidor kom fyrst á láni frá Zenit tímabilið 2024-25 og skoraði níu mörk þegar liðið tryggði sér sæti í úrvalsdeildinni. Sunderland keypti hann síðan síðasta sumar fyrir ríflega 5 milljónir punda.

Isidor hefur einnig skorað þrjú mörk í sjö landsleikjum fyrir Haítí, þar á meðal gegn Marokkó á heimsmeistaramótinu í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.