03.08.26 - 11:57
Brynjar Ingi Erluson
Fyrsta formlega tilboði Arsenal hafnað

Bruno Guimaraes

Mynd: EPA

Bruno Guimaraes

Mynd: EPA
Newcastle United hefur hafnað fyrsta formlega tilboði Arsenal í brasilíska miðjumanninn Bruno Guimaraes en þetta kemur fram á Sky Sports.
Englandsmeistararnir hafa átt í viðræðum við Newcastle undanfarnar vikur en lögðu ekki fram formlegt tilboð fyrr en nú.
Newcastle hafði áður hafnað óformlegum tilboðum frá Arsenal. Sky segir fyrsta formlega tilboðið hafa borist á dögunum en því var sömuleiðis hafnað.
Tilboðið er talið hafa verið töluvert lægra en þær 80 milljónir punda sem Newcastle vill fá fyrir Guimaraes. Arsenal ætlar nú að ræða næstu skref innan félagsins og ákveða hvort nýtt og endurbætt tilboð verði lagt fram.
Guimaraes er 28 ára gamall og hefur borið fyrirliðaband Newcastle undanfarin tvö ár. Hann tilkynnti stjórnarmönnum félagsins í síðasta mánuði að hann vildi ganga til liðs við Arsenal.
Brasilíumaðurinn á að mæta í æfingabúðir Newcastle á La Manga á Spáni í dag. Félagið vill halda honum en hugur Guimaraes leitar til Arsenal.
Hann á tvö ár eftir af samningi sínum og Newcastle getur framlengt hann um eitt ár til viðbótar með ákvæði í samningnum.