03.08.26 - 16:06
Brynjar Ingi Erluson
Liverpool hefur formlegar viðræður við PSG

Bradley Barcola gæti farið til Liverpool í sumar

Mynd: EPA

Liverpool hefur hafið formlegar viðræður við Evrópumeistara Paris Saint-Germain um franska landsliðsmanninn Bradley Barcola, en þetta segir Fabrizio Romano á X.
Liverpool og PSG hafa átt óformlegar viðræður undanfarna daga. Þar fengu Liverpool-menn þau skilaboð að verðmiðinn á Barcola væri 145 milljónir punda.
Liverpool telur þó hægt að prútta niður verðið og ætlar félagið að leggja fram formlegt tilboð upp á 87 milljónir punda á næstu dögum. PSG er líklegt til að hafna því umsvifalaust en búist er við að viðræðurnar haldi áfram.
Barcola er sagður spenntur fyrir Liverpool. Hann ætlar ekki að framlengja samning sinn við PSG og vill helst komast frá félaginu í sumar, þótt tvö ár séu eftir af núverandi samningi.
Vængmaðurinn er ósáttur við hlutverk sitt í París og vill komast í lið þar sem hann fær meiri ábyrgð. Hann telur sig geta fengið það hjá Liverpool en Barcola getur leyst stöðurnar á báðum vængjum.
Barcola er 23 ára gamall og uppalinn hjá Lyon. Hann sló í gegn með aðalliði félagsins áður en PSG keypti hann árið 2023.
Hann er einnig orðinn fastamaður í franska landsliðinu og hefur skorað sex mörk í 26 landsleikjum. Þrjú markanna komu á heimsmeistaramótinu í sumar.

???????? Understand official club to club talks between Liverpool and Paris Saint-Germain for Bradley Barcola have started.#LFC indicated initial bid value over €100m, still far from PSG requests — but talks are on.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 3, 2026
Barcola wants Liverpool, as exclusively revealed since May. pic.twitter.com/0AnsWpuklP

Mynd: EPA