Fotbolti.net
03.08.26 - 13:30
Brynjar Ingi Erluson

Mudryk til nýliðanna?

Mudryk er með nokkra möguleika í stöðunni

Mudryk er með nokkra möguleika í stöðunni

Canon

Mynd: EPA

Nýliðar Coventry hafa áhuga á því að fá úkraínska vængmanninn Mykhailo Mudryk á láni frá Chelsea út þetta tímabil en þetta kemur fram í FootMercato.
Fjögurra ára keppnisbanni Mudryk aflétt
TENGT EFNI

Fjögurra ára keppnisbanni Mudryk aflétt

Banni Mudryk var aflétt á dögunum en hann hafði þá ekki spilað fótbolta í tæp tvö ár eftir að hafa fallið á lyfjaprófi.

Enska fótboltasambandið dæmdi hann upphaflega í fjögurra ára bann en Mudryk áfrýjaði niðurstöðunni til Alþjóðaíþróttadómstólsins í Lausanne. Málinu hefur nú verið lokið eftir að hann viðurkenndi að hafa brotið reglur sambandsins.

Mudryk hélt beint til Hong Kong þar sem hann æfir með Chelsea-liðinu. Það er þó langt frá því öruggt að hann verði áfram hjá félaginu eftir lok sumargluggans.

Tvö ár er langur tími frá fótbolta og verkefnið verður ekki auðveldara í jafn vel mönnuðum hópi og Chelsea er með. Foot Mercato segir tvö félög vilja fá Úkraínumanninn á láni.

Frank Lampard og félagar í Coventry hafa áhuga. Liðið vann ensku B-deildina á síðasta tímabili og leikur því í úrvalsdeildinni í vetur.

Strasbourg í Frakklandi vill einnig fá Mudryk en félagið er undir sama eignarhaldi og Chelsea.

Engin ákvörðun hefur verið tekin um framtíð hans og er líklegt að Chelsea bíði þar til undirbúningstímabilinu lýkur áður en næsta skref verður ákveðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.