03.08.26 - 10:25
Brynjar Ingi Erluson
Tottenham leggur fram tilboð í Osimhen - Guimaraes í læknisskoðun hjá Arsenal

Victor Osimhen gæti verið á leið í ensku úrvalsdeildina

Mynd: EPA

Guimaraes er á leið í læknisskoðun hjá Arsenal

Tottenham er á eftir Victor Osimhen, Bruno Guimaraes er á leið í læknisskoðun hjá Arsenal og Atlético er að íhuga að leggja fram tilboð í Jack Grealish. Þetta og margt fleira í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Tottenham hefur lagt fram 55 milljóna punda tilboð í nígeríska framherjann Victor Osimhen (27) hjá Galatasaray. Tyrknesku meistararnir vilja hins vegar fá um 65 milljónir fyrir hann. (Caught Offside)
Bruno Guimaraes (28), fyrirliði Newcastle United og leikmaður brasilíska landsliðsins, er á leið í læknisskoðun hjá Arsenal. Kaupverðið verður um 80 milljónir punda. (Athletic)
Atlético Madrid íhugar að leggja fram tilboð í Jack Grealish (30), vængmann Manchester City. Everton og Aston Villa hafa einnig augastað á honum. (Sun)
Tottenham hefur átt jákvæðar viðræður við Cody Gakpo (26) en Liverpool hefur engan áhuga á að selja Hollendinginn. (Teamtalk)
Nýliðar Hull City eru nálægt samkomulagi við Nice um kaup á framherjanum Mohamed-Ali Cho (22). Enska félagið greiðir um 17 milljónir punda fyrir hann. (L'Equipe)
Chelsea hefur lagt fram nýtt og endurbætt tilboð í Pep Chavarria (28), vinstri bakvörð Rayo Vallecano. Spænska félagið hafnaði fyrra tilboði upp á 12,8 milljónir punda og lagði í kjölfarið fram móttilboð. (Teamtalk)
Hull City er að ganga frá kaupum á Lucas Herrington (18), varnarmanni Colorado Rapids og ástralska landsliðsins. Kaupverðið verður um 17 milljónir punda. (Sun)
Gonzalo Garcia (22) og Cesar Palacios (21) eru báðir á leið í læknisskoðun hjá Fulham en þeir koma frá Real Madrid. (Sky Sports)
Hull City leiðir kapphlaupið um norska miðjumanninn Jens Hjerto-Dahl (20) hjá Tromsö. Rangers og Cardiff City eru einnig í baráttunni. (Mail)