03.08.26 - 16:31
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ungur Valsari á reynslu hjá Nordsjælland

Mynd: Valur

Mynd: Valur
Valsarinn Guðmundur Brynjar Wehmeier er í heimsókn hjá danska félaginu Nordsjælland. Foreldrar hans eru með í för og einnig Gareth Owen sem er tæknilegur ráðgjafi Vals.
Guðmundur Brynjar er fæddur árið 2012 og spilar með 4. flokki Vals.
Hann hefur raðað inn mörkum í sumar, í 12 leikjum hefur hann skorað 36 mörk. Hann var hluti af U14 liði Vals sem vann danska mótið Dana Cup í síðasta mánuði.
Kantmaðurinn var í sumar valinn í hóp hjá U15 landsliðinu.

Það er sterk Íslandstenging við Nordsjælland. Daniel Ingi Jóhannesson er leikmaður aðalliðsins, Alexander Rafn Pálmason er í U19 og Fannar Heimisson kemur til félagsins frá KR næsta sumar.

Mynd: Valur