03.08.26 - 12:57
Brynjar Ingi Erluson
Valur fer til Moldóvu eða Sviss takist liðinu að vinna einvígið gegn Nordsjælland

Valsmenn fengu að vita hverjum þeir geta mætt í umspili Sambandsdeildarinnar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valsmenn fengu að vita mögulegan mótherja sinn í umspili í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í dag, en dregið var í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss.
Víkingar komust snemma að því hverjum þeir mæta ef þeir detta út í 3. umferð Evrópudeildarinnar. Þeir spila við annað hvort Borac eða ML Vitebsk.
Valur fær á meðan aðeins erfiðara verkefni, svona þegar horft er á pappírana.
Þeir þurfa auðvitað að byrja á því að henda danska liðinu Nordsjælland úr leik, en ef það tekst mun annað hvort Sheriff frá Moldóvu eða St. Gallen frá Sviss bíða þeirra.
Mjög áhugavert í ljósi þess að Valur hefur áður spilað við Sheriff, en liðið tapaði svekkjandi einvígi þeirra í 3. umferð í forkeppni Evrópudeildarinnar árið 2018 þar sem útivallarmörkin voru enn í gildi. Valur tapaði útileiknum 1-0, en vann heima 2-1 og var nálægt því að komast áfram undir lok leiks en heppnin var ekki með þeim.
„Eiður Aron er hér í dauðafæri en Sheriff bjargar á línu. Í kjölfar næstu hornspyrnu nær Birkir Már skalla í slánna og svo ver Pasceno vel frá Birki sem náði frákastinu. Þetta var ótrúlegt,“ skrifaði Kristófer Jónsson í textalýsingu Fótbolta.net þann örlagaríka dag.
Erfið leið hjá Völsurum en alls ekki ómöguleg.
Leikirnir eru spilaðir 20. og 27. ágúst næstkomandi.