Fotbolti.net
03.08.26 - 11:09
Brynjar Ingi Erluson

Varnarmaður Chelsea færist nær Napoli

Varnarmaður Chelsea færist nær Napoli
Canon

Mynd: Chelsea

Franski miðvörðurinn Benoit Badiashile er á leið til Napoli frá Chelsea á láni út tímabilið. Þetta kemur fram í frönskum og ítölskum miðlum.
Badiashile er einn af átta miðvörðum í leikmannahópi Chelsea og ætlar félagið að fækka í þeim hópi áður en tímabilið hefst.

Frakkinn hefur verið á mála hjá Chelsea frá árinu 2023 þegar hann kom frá Mónakó.

Hann hefur reglulega verið orðaður við ítölsk félög undanfarin ár, meðal annars AC Milan í byrjun árs. Nú virðist brottför hins vegar færast nær.

Napoli og Juventus hafa leitt kapphlaupið um Badiashile í sumar en Napoli er komið skrefinu lengra og hefur leikmaðurinn þegar átt góð samtöl við Max Allegri, nýjan þjálfara liðsins.

Allt stefnir því í að Badiashile fari til Napoli á láni með kaupákvæði í samningnum.

Badiashile er 25 ára gamall og lék 16 leiki fyrir Chelsea í öllum keppnum á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.