03.08.26 - 11:47
Brynjar Ingi Erluson
Víkingar til Færeyja eða Póllands - Gísli Gottskálk gæti snúið aftur í Víkina

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er orðið ljóst hverjum Víkingur getur mætt í umspili um sæti í deildarkeppni Evrópudeildarinnar en dregið var í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss í dag.
Víkingur mætir Thun frá Sviss í þriðju umferð forkeppninnar en í dag var dregið í umspilið.
Þar kom í ljós að Víkingar mæta annaðhvort Lech Poznan eða KÍ frá Klaksvík takist þeim að vinna einvígið gegn Thun.
Fyrrum Víkingurinn Gísli Gottskálk Þórðarson er á mála hjá Lech Poznan en pólska liðið er talið líklegra til að komast áfram gegn KÍ. Gísli gæti því verið á leið aftur í Víkina.
Síðar í dag verður einnig dregið í umspil Sambandsdeildarinnar og kemur þá í ljós hvaða liði Víkingur mætir tapi liðið einvíginu gegn Thun.
Íslendingalið AGF mætir annaðhvort Benfica eða Hearts takist liðinu að vinna Sabah. Tómas Bent Magnússon er á mála hjá Hearts en Mikael Neville Anderson og Tómas Óli Kristjánsson leika með AGF.
Leikirnir í umspilinu fara fram 20. og 27. ágúst.