Fotbolti.net
03.08.26 - 17:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Viktor Bjarki framlengir við FCK

Viktor Bjarki framlengir við FCK
Canon

Mynd: EPA

Viktor Bjarki Daðason hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við FC Kaupmannahöfn.

Danski miðillinn Bold greinir frá þessu en þar kemur fram að það hafi verið í forgangi að framlengja samning hans þar sem hann er einn af efnilegustu leikmönnum liðsins.
Viktor gekk til liðs við félagið frá Fram árið 2024 og var færður upp í aðalliðið í janúar á þessu ári. Hann hefur spilað 29 leiki og skorað tíu mörk.

Hann er fjórði yngsti leikmaður sögunnar til að skora í Meistaradeildinni þegar hann skoraði í 4-2 tapi gegn Dortmund í október. Þá skoraði hann gegn Barcelona á Nývangi í janúar.

Hann er meiddur um þessar mundir en hann hefur ekkert spilað síðan í maí.

Heimild: Bold

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.