03.08.26 - 18:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson
West Ham á eftir leikmanni Tottenham

Mynd: EPA

Mynd: EPA
West Ham hefur áhuga á Manor Solomon, vængmanni Tottenham, samkvæmt heimildum talkSPORT.
Solomon er mættur aftur til Tottenham eftir að hafa verið á láni hjá Villarreal og Fiorentina á síðasta tímabili.
Þessi 27 ára gamli Ísraeli hefur verið í stóru hlutverki hjá Tottenham á undirbúningstímabilinu en aðeins Archie Gray hefur spilað fleiri mínútur.
Tottenham er tilbúið að selja hann þremur árum eftir að hann gekk til liðs við félagið á frjálsri sölu. West Ham er að styrkja hópinn fyrir átökin í Championship deildinni eftir að liðið féll úr úrvalsdeildinni.
West Ham er í leit að nýjum vængmanni eftir að félagið seldi Crysencio Summerville til Al-Hilal fyrir 68 milljónir punda. West Ham seldi Mateus Fernandes til Tottenham einnig í sumar.