Fotbolti.net
03.09.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

4. deild: Álftanes með fimm stiga forystu á toppnum

4. deild: Álftanes með fimm stiga forystu á toppnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Árborg 2 - 4 Álftanes
0-1 Patrik Thor Pétursson ('12 )
1-1 Freyr Héðinsson ('16 )
1-2 Stefán Smári Halldórsson ('43 )
1-3 Bessi Thor Jónsson ('54 )
2-3 Freyr Héðinsson ('78 )
2-4 Patrik Thor Pétursson ('87 )
Álftanes er með fimm stiga forystu á toppi 4. deildar eftir sigur á Árborg í næst síðustu umferðinni í gær.

Patrik Thor Pétursson kom liðinu yfir en Freyr Héðinsson jafnaði metin stuttu síðar. Stefán Smári Halldórsson sá til þess að Álftanes var með forystuna í hálfleik.

Bessi Thor Jónsson bætti þriðja marki Álftanes við en Freyr skoraði síðan sitt annað mark og annað mark Árborgar. Patrik innsiglaði sigur Álftanes undir lokin með sínu öðru marki.

Álftanes er með 48 stig, fimm stiga forystu á Hamar sem spilar í kvöld en Árborg er í 4. sæti með 22 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.