03.09.26 - 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Frakkland: Hákon og Lille stálu sigrinum

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Toulouse 0 - 1 Lille
0-1 Ayase Ueda ('73)
0-1 Ayase Ueda ('73)
Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Lille og lék allan leikinn í afar naumum sigri á útivelli gegn Toulouse í efstu deild franska boltans í kvöld.
Heimamenn í Toulouse voru talsvert sterkari aðilinn og sköpuðu mikið af góðum færum, en tyrkneski markvörðurinn Berke Özer átti stórleik á milli stanganna. Hann varði ellefu bolta til að halda markinu hreinu á meðan liðsfélagar hans í Lille sköpuðu ekki jafn góð færi.
Hákon og félagar sköpuðu sér þó einhver færi og nýtti Japaninn Ayase Ueda eitt þeirra á 73. mínútu. Það var smá heppnisstimpill yfir markinu þar sem Ueda náði að fylgja eigin marktilraun eftir með skalla af stuttu færi.
Toulouse tókst ekki að gera jöfnunarmark á lokakaflanum svo lokatölur urðu 0-1. Lille er með sjö stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar á nýju tímabili. Toulouse situr eftir með eitt stig.