03.09.26 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Hugh Jackman vill kaupa hlut í Norwich

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Leikarinn heimsfrægi Hugh Jackman er í viðræðum um kaup á hlut í enska Championship félaginu Norwich.

TENGT EFNI
Ryan Reynolds og Hugh Jackman fylgdust með drættinum
Hann er mikill áhugamaður um enska boltann og er góður vinur Ryan Reynolds sem er annar eigenda Wrexham. Þeir hafa leikið saman í nokkrum vinsælum Hollywood bíómyndum og gætu orðið andstæðingar í ensku Championship deildinni ef kaupin ganga í gegn.
Reynolds er meirihlutaeigandi í Wrexham ásamt Rob McElhenney, sem er frægur fyrir hlutverk sitt í grínþáttunum It's Always Sunny in Philadelphia.
„Ég hef mjög, mjög mikinn áhuga á að taka þátt í enska boltanum," sagði Jackman þegar hann var spurður út í möguleg kaup á hlut í félagi á Englandi. „Flott hjá þér Ryan (Reynolds), haltu þínu striki, ég er hrifinn af kanarífuglunum."
Norwich City FC eru þekktir sem kanarífuglarnir.