Fotbolti.net
03.09.26 - 22:56
Ívan Guðjón Baldursson

Mourinho ósáttur: Skaðar ímynd klúbbsins

Mourinho ósáttur: Skaðar ímynd klúbbsins
Canon

Mynd: EPA

José Mourinho þjálfari Real Madrid ræddi ýmislegt á fréttamannafundi fyrir leikinn gegn Real Betis annað kvöld.
Asencio sýknaður af ákæru um dreifingu á barnaklámi
TENGT EFNI

Asencio sýknaður af ákæru um dreifingu á barnaklámi

Hann ræddi meðal annars Raúl Asencio sem var á dögunum sýknaður fyrir að dreifa kynlífsmyndbandi sem innihélt ólögráða stelpu.

Þrátt fyrir sýknuna er Mourinho ekki ánægður með umtalið sem málið hefur skapað í fjölmiðlum.

„Ég er ekki ánægður með Raúl Asencio. Hann er mikill fagmaður og leggur gríðarlega mikið á sig á æfingum, en við verðum að muna að leikmaður Real Madrid er alltaf leikmaður Real Madrid. Þó að hann sé í fríi utan vallar," sagði Mourinho.

„Ég er ekki ánægður þegar eitthvað sem gerist utan klúbbsins skaðar ímynd Real Madrid."

Real hefur farið vel af stað undir stjórn Mourinho og er með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir, alveg eins og Spánarmeistarar Barcelona. Nágrannarnir í Atlético Madrid eru með sjö stig.

„Deildartímabilið verður erfitt. Ég held að Atlético Madrid geti barist um titilinn. Þó að þeir viðurkenni það ekki opinberlega þá líður þeim eins og þeir geti barist um titilinn. Að mínu viti geta þeir verið með í titilbaráttunni."

Real Madrid var að ganga frá kaupum á 19 ára miðjumanni úr röðum Racing Santander. Real borgaði upp riftunarákvæðið í samningi hans sem numdi ekki nema þremur milljónum evra.

Hann heitir Sergio Martínez og er landsliðsmaður U19 liðs Spánverja.

„Hann verður á bekknum gegn Betis. Við treystum honum."
Mourinho ósáttur: Skaðar ímynd klúbbsins
Canon

Mynd: EPA

Mourinho ósáttur: Skaðar ímynd klúbbsins
Canon

Mynd: EPA

Mourinho ósáttur: Skaðar ímynd klúbbsins
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.